Skip to content

Breytingar

13. Feb 2010

Jæja þá er það loksins komið á hreint. Við flytjum á mánudaginn. Í hús sem er fyrir aftan núverandi strætóstoppustöðina okkar. Þetta er fjölbýlishús, sem var víst byggt sem skriftstofuhúsnæði en síðan breytt í íbúðir. Íbúðin er mikið minni en sú sem við erum í núna en það er hvort sem er mikið af  plássinu í núverandi íbúð vannýtt í stiga og ganga. En kosturin er að nýja íbúðin er bara á einni hæð og það er væntanlega auðveldara og ódýrara að hita hana. Svo erum við á 6.hæð með svalir og geggjað útsýni. Og rúsínan í pysluendanum er sameiginlegi þakgarðurinn!!! Við fáum ekki lyklana fyrr en á mánudag en við erum samt byrjaðar að plana grill-þak-partýin ;)

Nýja húsið. Myndin er tekin frá strætóstoppustöðinni. Okkar íbúð er hinu megin í húsinu, ekki í átt að stóru umferðargötunni

Öryggið á oddinn

05. Feb 2010

Barklays vinur minn var að uppfæra öryggið í heimabankanum svo þeir sendu mér þessa græju. 

Næst þegar þú kvartar undan auðkennislyklinum sem íslensku bankarnir nota og passar á lyklakippuna þína skaltu spá í þessari græju (sem þú munt hvort sem er væntanlega fá á endanum).

Hingað til hef ég þurft eftirnafnið og viðskiptanúmerið mitt (12 tölustafir sem ég mun aldrei í lífinu muna) ásamt lykilnúmerinu mínu og 2 tilviljanakenndum stöfum úr lykilorðinu mínu til að komast inn í heimabankann.
Til að geta skráð mig inn þarf ég framvegis að hafa við hendina þessa græju, sem er í svipaðri lengd og breydd og kreditkort en þykkari en öll kortin í veskinu mínu samanlagt (minnir mikið á lítinn vasareikni í stærð), og svo eitt af kortunum mínum frá þessum banka (ég á nú bara eitt svo það er lítill valkvíði innifalinn). Síðan þarf ég að slá pin nr á kortinu sjálfu inn í græjuna til að fá auðkennisnúmer og þá er ég loksins komin inn í heimabankann. Auðvitað þarf ég samt fyrst að setja inn þessa blessuðu talnarunu sem er viðskiptanúmerið mitt og eftirnafnið mitt þar sem það er víst lykillinn að hamingjunni í þessum heimi (ég vil ekki vita hvers konar taugaáfall bankinn þinn fær þegar þú giftir þig og tekur upp eftirnafn eiginmannsins þíns).

Ég veit ekki ennþá hvernig millifærslur virka í gegnum græjuna, það kemur í ljós næst þegar ég borga leigu… stay tuned…..

31. Jan 2010

Labbaði í gær frá Chelsea háskólanum, sem er milli Pimlico og Vauxhaul lestarstöðvanna, og til Kaupmannahafnargötu sem er rétt hjá Angel stöðinni. Þetta tók ca 4,5 klukkutíma, með stuttu kaffistoppi. Mjög hressandi ganga í kuldanum. Tilgangurinn var að safna vökvasýnum á leiðinni sem síðan voru sett upp sem ca klukkutímalöng sýning í tengslum við þetta.  Tók líka slatta af myndum af því sem fyrir augu bar á leiðinni – skellti þeim hér inn. Mjög góður dagur í heildina.

Ef þið skilduð einhverntíman þurfa á þessari vitneskju að halda þá eru þetta höfuðstöðvar MI5 leyniþjónustunnar

As the winter winds litter London with lonely hearts….

13. Jan 2010

ehem…. það er víst komin þann 13. og snjókoman í þessum töluðu orðum sýnir að spá mín um að vetrarverðinu ljúki ekki seinna en þann 15. er greinilega ekki að gera sig.

Vá hvað ég er orðin leið á þessu.

Líklegast samt ekki eins og vinkona mín sem ætlaði að skreppa í helgarheimsókn til london í síðustu viku. Hún eyddi degi í kef, fór svo bara aftur heim og ákvað að fresta ferðinni um viku, til öryggis, það er nú varla vetur í london svona lengi. Í nótt fór svo aftur að snjóa svo að þegar hún mætti út á flugvöll var búið að loka Gatwick. Næsta tilraun til flugs er seinni partinn svo hún er að spá í að skreppa í vinnuna inni í Hafnarfirði frekar en að eyða öðrum miðvikudegi í leifstöð.

Þetta er í alvöru ekkert persónulegt. Við höfum ekkert á móti því að fá hana, eða aðra, í heimsókn. En þetta staðfestir algjörlega niðurstöðuna sem við systir mín komumst að í desember. Ekki reyna að koma hingað á tímabilinu 1.des til 27.feb! Hún og dóttir hennar hafa reynt þetta tvisvar. Fyrst í febrúar en þá mættu þær 2 dögum of seint vegna veðurs á íslandi og núna í desember var frænkan föst í Swiss í einn og hálfan dag vegna veðurs í london. Ekki nema von að síðasta iceland express tilboð hafi verið á flugi bara í jan og feb ;)

Vetrarhörkurnar 2009-2010

07. Jan 2010

Ég bý í suður london og eins og allir vita er veðrið alltaf betra eftir því sem maður fer sunnar í þessum heimi……………… þar af leiðandi eru vetrarhörkurnar ekki meiri en þetta í zone 2 í suður london

Það er reyndar skítakuldi (úti og þar af leiðandi inni líka) en það er svo sem ekkert nýtt, það hefur nú hingað til ekki þurft frost til að það sé skítkalt hérna.

Um þessar mundir á ég tvo sambýlinga (báðar frá nýjasjálandi), þær fóru báðar snemma heim úr vinnunni í gær, ásamt vinnufélögunum, vegna þess að það var búið að snjóa jafnt og þétt lengur en það tók þær að segja: “vá það snjóar” (já ég er vond og geri grín að þeim þó ég viti að þær hafi aldrei áður upplifað vetur með snjó).

29 ár af nákvæmlega þessu vetrarveðri og ég er komið með ógeð…. kannski er þetta viðmið mitt í lífinu: ég flyt heim daginn sem snjór og hálka fer aftur að vera eitthvað spennandi í mínum huga ;)

Annars spái ég því að þessi “vetur” verði búinn ekki seinna en 15.janúar (það þýðir heill mánuður á milli fyrstu og síðustu snjókomu).

Uppáhalds í dag

05. Jan 2010

Lá í tónlistarlegum dvala í dálítin tíma, hlustaði ekki á neitt nema útvarpsvekjarann á morgnanna og stöðin mín er búin að spila nákvæmlega það sama á sama tíma á hverjum morgni í hálft ár (þar á meðal Little Lion man með bresku þjóðlagasveitinni Mumford and Sons sem er fáránlega vinsæl hérna þessa dagana). En svo fór ég á tónleika og kynntist einhverju nýju og skemmtilegu og núna um jólin datt ég í tónlistarblogg þar sem maður getur hlaðið niður allskonar skemmtilegheitum (og leiðindum reyndar líka).

Uppáhalds uppáhaldið þessa dagana er:

mp blogg (eins og t.d. cover laga síðan) og Hypem síðan

Ellie Golding – platan hennar kemur út í mars

Golden Silvers – mega skemmtilegir og svona líka dásamleg breskir í útliti og hljómi

og nýja Hjaltalín platan sem kom úr einum jólapakkanum – þvílík snilld .

Florence and the Machine – þó að platan sé góð þá var hún ennþá betri acoustic á tónleikunum um daginn

Svo get ég aldrei þessu vant mælt með einhverju í bíó – fór nefnilega í 4 bíóferð ársins 2009 um jólin – og sá Nowhere Boy sem er mjög góð :) (vissuð þið að Sam Taylor Wood sem leikstýrir Nowhere Boy er nýtrúlofuð aðalleikaranum…. svo sem ekki merkilegt nema af því að hún 42 ára og hann er 19!!! þetta er mitt uppháldsslúður ársins 2009)

2010

02. Jan 2010

Dagatalið fyrir 2010 er gjörsamlega tómt. Engir tónleikar, engin viðburðir, engin ferðalög og engar heimsóknir!!! Hvað er í gangi??? Það eina sem er nálægt því að vera kannski á dagskrá er hugsanleg ferð til Egyptalands í páskafríinu mínu (annað hvort yfir sjálfa páskana eða rétt fyrir/eftir). Þetta gengur bara engan veginn – koma svo gott fólk, planið heimsókn – helst heimsókn til að fara á tónleika ;)

30. Dec 2009

Margt skrítið í kýrhausnum

28. Dec 2009

Þeir eru skrítnir þessi útlendingar, stundum gott skrítnir stundum frekar hallærislega skrítnir og stundum bara alveg stórfurðulegir.

Fyrir það fyrsta þá er aðfangadagur bara ósköp venjulegur dagur nema búðirnar loka um 6 leitið og fólk dettur í það eins og það sé venjulegur frídagur daginn eftir.

Á jóladag rölti ég yfir í hús vinkonu minnar sem er hérna hinu megin við hornið til að sækja kalkúninn (ég er að fylgjast með húsinu því þau eru ekki heima svo við notuðum tækifærið og fengum að geyma kalkúninn og hitt kjötið í ísskápnum þeirra), klukkan var rúmlega 11 um morguninn og það var búið að opna hverfispöbbinn. Hann var reyndar bara opin til 3:30 síðdegis – ég gerði ráð fyrir að hugsunin á bak við þennan stutta opnunartíma væri að klukkan 3 ætti fólk að lufsast heim til sín að borða jólasteikina. Kom í ljós að það er líklegra að pöbbinn hafi boðið upp á jólasteik og að gert væri ráð fyrir að kl 3 væru allir búnir að borða. Gamli kallinn sem býr á móti okkur var mættur strax klukkan 11 en mér finnst líklegt að hann búi einn svo ég skil vel að hann hafi farið e-ð til að fá sér jólasteik en þess fyrir utan þá skil ég ekki hvers vegna veitingastaðir í london eru opnir á jóladag – sérstaklega ekki þar sem almenningssamgöngur liggja algjörlega niðri (engin strætó engar lestar hvorki innanbæjar né á milli bæja).

Á annan í jólum opna svo allar búðir eldsnemma til að opna útsölurnar – vænn afsláttur á öllu draslinu sem þú varst að enda við að kaupa 2 dögum áður til að gefa í jólagjafir. Við erum að tala um örtröð fyrir utan áður en búðirnar opna. Eins og alltaf opnar Next sína útsölu við fyrsta hanagal, sem var að mér skilst 06:00 þennan morguninn frekar en 7 eins og heima, og fólk var byrjað að safnast saman fyrir utan klukkan 5!!! Vinkonur mínar fóru í verslunarleiðangur í gær (ekki fræðilegur möguleiki að ég nennti með þeim svo ég var heima og las íslenska spennusögu og eldaði hangikjöt í friði og ró eins og jólin eiga að vera) , þær náðu að versla eitthvað en slepptu sumum búðum því það var bara of mikið af fólki þar. Búðarfólk fékk sem sagt lengdan opnunartíma í viku, einn virkan dag með styttum opnunartíma og svo einn vesælan frídag og þurftu að mæta aftur í vinnu á laugardegi.

Dagurinn í dag er hins vegar frídagur í þessu landi – reyndar eru allar búðir pottþétt opnar en þá væntanlega bara eins og á sunnudögum (til 5  eða 6 í stað 7, 8 eða jafnvel 9). Þessi auka frídagur er vegna þess að annar í jólum féll á helgi.

Niðurstaðan mín er sú að við eigum að halda fast í okkar hefð að ekki opna búðir á annan í jólum (sérstaklega ekki með útsölum) en við ættum hins vegar að taka upp þann sið að færa til frídaga sem lenda á helgi (1.maí, 17.júni, jól osfrv).

Krummi

27. Dec 2009

Fallega jólagjöfin mín

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.