Ekki lengur námsmaður
Mér gekk frekar illa að finna góðan titil á lokaverkefnið mitt, þannig að ég endaði á að halda mig við upprunalega titilinn: The Magic Hour. Ljósaskiptin (tvilight) eru oft, sérstaklega af ljósmyndurum, kölluð töfrastundin svo ég ákvað að halda mig við þann titil jafnvel þó að þessar myndir séu allar teknar eftir að það er orðið alveg dimmt. En það hafa margar ljósmyndir verið flokkaðar sem ljósaskiptamyndir þó þær séu teknar eftir að skiptum líkur og orðið er aldimmt – þegar myndir eru teknar út í myrkrið þá þarf að hafa linsuna opna lengi og birtan getur breyst á þeim tíma svo þetta er þannig séð ekki einu sinni hvít lygi. Anywho…. ég vinn við að setja bókasafnsbækur aftur upp í hillu og í dag gekk ég frá bók sem heitir Fresh air smells funny…. snilldar titill sem ég hefði náttúrulega átt að stela. Þetta er jú alveg satt í svona stórborgum, og liturinn á himninum er svona margbreytilegur meðal annars vegna ljós- og svifryksmengunar – jæja það er svo sem auðvelt að vera sniðugur eftir á
Allaveganna þá er hérna linkur á síðu sem fylgir sýningunni okkar, þar eru stakar myndir úr seríunni minni og hérna eru svo nokkrar myndir frá sýningunni sjálfri. Ég tek svo fleiri myndir af restinni af sýningunni á næstu dögum og hendi hingað inn.
At Camberwell 2010 – og hér er beinn linkur á mitt dót

Svona leit herbergið út þegar ég fór á föstudeginum þegar lokaskilin voru. Erfiður samnemandi þarf endilega að hafa aukavegg til að hengja myndirnar sínar á móti hver annari, vegg druslan var sett upp þannig að ekki var hægt að standa fyrir framan myndirnar mínar og horfa á þær allar í einu.

Þetta er ssamt flott herbergi, svakalegur þakgluggi í miðjunni sem þýðir að það er rosalega bjart (og heitt) á daginn. Fyrir neðan gluggann í horninu fyrir ofan síðustu myndina mína er rör sem lekur úr þess vegna setti ég ekki upp eina mynd í viðbót

Eftir að við vorum búin að skila af okkur og kennararnir búnir að fara yfir og gefa okkur einkunn ákvaðu þeir að gera all miklar breytingar á uppsetningunni. Þeir færðu fólk til, ráðlögðu breytingar osfrv til þess að sýningin í heild líti sem best út. Sem betur fer færðu þeir þennan aukavegg þannig að myndirnar mínar ná núna betur að njóta sín og öll hin verkin í kringum þennan vegg gera það líka.

Eftir að veggurinn var fluttur fengu myndirnar mínar nýja nágranna. Það fór ekki alveg nógu vel um þær svo ég tók eina af mínum niður og vígslaði aðeins myndum þannig að núna eru 2 á styttri veggnum í stað 3 en það er í góðu lagi.

