Skip to content

Sumarfrí 22.júní – 11.júlí

05. Jun 2011

Þetta eru grófar útlínur sumarfrísins á Íslandi, endilega pantið daga/kvöld til að gera eitthvað skemmtilegt. Ég geri fastlega ráð fyrir að heiðra miðbæinn með nærveru minni eftir miðnætti um helgar – ef þið skiljið hvað ég meina (bara spurning hver ætlar að koma með mér) ;)

Miðv. 22.júní: lending í Keflavík

Fim 23.júní: Klipping og ferð til sýslumans að sækja um vegabréf. Kaffihús með afmælisbarni vikunar

Föst 24.júní: Sund og bæjarrölt með þessari sem er á síðasta sumarfrísdeginum. Dinner 3 amigos

Laug. 25.júní:  bæjarrölt og/eða sund (fer eftir veðri) allir velkomnir (það væri sérstaklega ánægjulegt að hitta sem flesta á röltinu (óvænt eða planað))

Sun 26.júní: mögulega lagt af stað í road trip… annars sund/ráf um rvk

Mán 27. – Fim. 30.júní: Roadtrip út á land.  Fim. 30. dinner með bankastelpum

Föst 1.júlí: Útskriftarpartý

Laug 2.júlí: sund/bæjarrölt….

Sun. 3.júlí: mögulega lagt af stað í road trip annars einhver sniðug ganga um rvk

Mán 4. – Fim. 7.júlí: Roadtrip út á land, mögulega komin í bæinn síðdegis og því kvöldið laust.

Föst. 8.júlí:

Laug. 9.júlí:

Sun: 10.júlí: Brunch. Sundferð. Kvöld með fjölskyldunni.

Mán. 11.júní: Fyrir allar aldir: flug frá KEF.

GLEÐILEG JÓL

24. Dec 2010

Jólaheimsókn 2010

14. Dec 2010

Ég lendi á Íslandinu góða á fimmtudag, stefnan er að fara út á lífið bæði föst og laugardagskvöld (dinner, drinks dancing að öllum líkindum). Allir velkomnir með. Endilega látið mig vita af helgarplönum svo við getum samræmt skemmtilegheitin :) heimsóknir, kaffihús og bæjarrölt á daginn og öll hin kvöldin þarfnast líka tímapantanna, ég er bara búin að bóka mánudag og jólin. Verð með fulla tösku af slúðri svo ekki missa af mér ;)

Óskalistinn // My wishlist

25. Sep 2010

Þegar ég er spurð að því hvað mig langi í í afmælis/jólagjafir þá dettur mér venjulega ekkert í hug akkúrat á því augnabliki. Þess vegna ætla ég að halda úti óskalista færslu hérna sem ég get síðan uppfært þegar mér dettur eitthvað í hug (og svo get ég strikað út ef ég eignast eitthvað af listanum). // Because I can never remember anything when asked what I want for my birthday or christmas I’m keeping a wishlist here. I will update it whenever I think of anything and cross out things I get. If things are only written in that made up language I insist on using all the time, it’s because it’s something only available at home (do click on the links though to see some fab icelandic design). Ekki í neinni ákveðinni röð ///  Not in any particular order:

Nattfot (kosy flannel) og innisko (fra td. Muji eda Uniqlo)

Uppstoppaða bleika flamingóa (helst með fjöðrum annars svona garðskraut úr plasti)

Sólarhleðslutæki fyrir allar græjur // Solio – solar power charger

Spiladós eftir Margréti Guðnadóttur í Kirsuberjatrénu

Glæran miðstóran Alvar Aalto vasa ///  Clear medium size Alvar Aalto vase

Pönnukökupönnu & spaða

Vöfflujárn

KitchenAid artisan stand mixe / Hrærivél in apple green or bage

Rauða sjalið frá Farmers Market

Svo er ég auðvitað með óskalista á Amazon sem er uppfærður reglulega / And my Amazon whishlist is updated regularly

Fallegt

24. Aug 2010

Ég hef alltaf haft það að markmiði að búa í stiga lausu húsnæði þegar ég verð stór en ef það verða endilega að vera stigar þá ætla ég að mála þá eins og regnbogan

Ekki lengur námsmaður

18. Jun 2010

Mér gekk frekar illa að finna góðan titil á lokaverkefnið mitt, þannig að ég endaði á að halda mig við upprunalega titilinn: The Magic Hour. Ljósaskiptin (tvilight) eru oft, sérstaklega af ljósmyndurum, kölluð töfrastundin svo ég ákvað að halda mig við þann titil jafnvel þó að þessar myndir séu allar teknar eftir að það er orðið alveg dimmt. En það hafa margar ljósmyndir verið flokkaðar sem ljósaskiptamyndir þó þær séu teknar eftir að skiptum líkur og orðið er aldimmt – þegar myndir eru teknar út í myrkrið þá þarf að hafa linsuna opna lengi og birtan getur breyst á þeim tíma svo þetta er þannig séð ekki einu sinni hvít lygi. Anywho…. ég vinn við að setja bókasafnsbækur aftur upp í hillu og í dag gekk ég frá bók sem heitir Fresh air smells funny…. snilldar titill sem ég hefði náttúrulega átt að stela. Þetta er jú alveg satt í svona stórborgum, og liturinn á himninum er svona margbreytilegur meðal annars vegna ljós- og svifryksmengunar – jæja það er svo sem auðvelt að vera sniðugur eftir á ;)

Allaveganna þá er hérna linkur á síðu sem fylgir sýningunni okkar, þar eru stakar myndir úr seríunni minni og hérna eru svo nokkrar myndir frá sýningunni sjálfri. Ég tek svo fleiri myndir af restinni af sýningunni á næstu dögum og hendi hingað inn.

At Camberwell 2010 – og hér er beinn linkur á mitt dót

Svona leit herbergið út þegar ég fór á föstudeginum þegar lokaskilin voru. Erfiður samnemandi þarf endilega að hafa aukavegg til að hengja myndirnar sínar á móti hver annari, vegg druslan var sett upp þannig að ekki var hægt að standa fyrir framan myndirnar mínar og horfa á þær allar í einu.

Þetta er ssamt flott herbergi, svakalegur þakgluggi í miðjunni sem þýðir að það er rosalega bjart (og heitt) á daginn. Fyrir neðan gluggann í horninu fyrir ofan síðustu myndina mína er rör sem lekur úr þess vegna setti ég ekki upp eina mynd í viðbót

Á föstudeginum

Eftir að við vorum búin að skila af okkur og kennararnir búnir að fara yfir og gefa okkur einkunn ákvaðu þeir að gera all miklar breytingar á uppsetningunni. Þeir færðu fólk til, ráðlögðu breytingar osfrv til þess að sýningin í heild líti sem best út. Sem betur fer færðu þeir þennan aukavegg þannig að myndirnar mínar ná núna betur að njóta sín og öll hin verkin í kringum þennan vegg gera það líka.

Eftir að veggurinn var fluttur fengu myndirnar mínar nýja nágranna. Það fór ekki alveg nógu vel um þær svo ég tók eina af mínum niður og vígslaði aðeins myndum þannig að núna eru 2 á styttri veggnum í stað 3 en það er í góðu lagi.

The Magic Hour

19. May 2010

Allt á suðupunkti í skólanum. Lokaverkefnið sem sýnt er á útskriftarsýningunni gildir 50% af lokaeinkunn, þeas þetta er 50% af allri gráðunni (hin tvö árin nefnilega gilda ekki neitt, bara upphitun). Við klárum að hengja sýninguna og skilum öllu af okkur í lok dags 4.júní. Ég mun hafa tíma fyrir einn bjór og svo bruna ég beint út á flugvöll og flýg heim (af askan lofar). Daginn eftir er svo brúðkaup, eftir það til 10.júní verður hefðbundið íslands-stúss og heimsóknir.

Úskriftarsýningin sjálf opnar svo 19.júní og er opin til 26.

101 Reykjavík

12. Apr 2010

Bókasafnið í skólanum mínum á 101 Reykjavík á dvd. Líka bókasafn eins af systurskólunum, London College of Communication, en þar er búið að skella ágætlega stórum límmiða framaná hulstrið. Límmiðinn er aðvörun á efni diskins:

Mér finnst fyrri parturinn af seinni málsgreininni bestur; það eru ekki bara sögupersónurnar sem eru klikk, heldur varpar þessi geðveiki ljósi á íslenskt samfélag í heild í heild sinni – lov’it!!!

Páskar

05. Apr 2010

Ætlaði að eyða föstudeginum langa í semí-leti og smá leiðangri. Fyrsta stopp átti að vera pizza staður niðrí brixton sem bíður upp á alvöru napólí pizzur (ítalskar pizzur eru þær bestu í heimi og bestu pizzur á ítalíu eru í napólí), þar voru ca 15 manns í biðröð fyrir utan þennan pínulitla stað svo pizzan var sett á hold í óákveðinn tíma. Næsta stopp átti að vera nýopnuð pop-up búð í miðbænum, hún var lokuð. Svo ætluðum við á american apparel megaútsölu á Brick Lane. Þegar við mættum þangað var allt lokað og miði á hurðinni sem sagði “cancelled”. Ástæðan var uppþot sem skapaðist um morguninn þegar þeir opnuðu. Ég fór heim og opnaði hvítvín í sárabætur.

Skruppum svo til Oxford á sunnudaginn. Voðalega skemmtileg borg – mjög þægilegt og auðvelt að finna allt þar, enda allt frægt og merkilegt staðsett í miðbænum og hann er staðsettur alveg við lestarstöðina. Það er líka lítið atvinnuleysi í Oxford, amk var önnur hver búð og veitingastaður sem miða út í glugga að óska eftir starfsfólki.

Sunnudagur og mánudagur eru svo heilagir leti dagar á mínu heimili. Ekkert nema gláp, bókalestur, pússl og súkkulaði.

Eldaði andabringu sem páskasteik. Fyrir utan einstaka pekingönd vafða í pönnuköku held ég að þetta hafi mögulega verið í fyrsta sinn sem ég borða aliönd – hingað til hef ég bara borðað villtar endur sem hafa verið veiddar af einhverjum sem ég þekki. Kannski þess vegna sem mér fannst greyið ekki bragðast eins og önd.

Krókusar í skítakulda

06. Mar 2010

Flutt.

Útsýnið er alveg út í hött. Myndirnar eru á facebook – þú þarna í danaveldi fáðu þér facebook ;)

Fengum “kapal” sjónvarpið tengt í dag svo við erum aðeins nær því að fylgjast með umheiminum. Heimasíminn og internetið verður ekki tengt fyrr en einhverntíman. Þangað til notast ég við bráðabirgðar net í gegnum sim kort.

Það er lélegt internet sem leyfir ekki notkun á neinum spjallforritum svo ég er sambandslaus.  En þegar hinn stóri tengingardagur mun renna upp verð ég með bæði internet og heimasíma sem allir munu að sjálfsögðu nota til að hringja í mig stöðugt. Þessum heimasíma fylgir frí símtöl til 10 vinsælustu landa í heimi, Ísland er ekki eitt af þeim en Danirnir mínir munu hins vegar ekki fá frið fyrir mér og ókeypis símtölunum mínum :P

Draslið mitt gjörsamlega fyllir út í hvern cm í herberginu mínu en það er nóg dýnu pláss í stofunni svo koddu’í heimsókn!!!

Partý á þakinu í allt sumar, ekki nóg með að útsýnið nái til allra átta heldur eru líka 3 grill þarna uppi svo ég mun ekki borða neitt nema grillmat um leið og það er orðið nógu hlýtt til að fara úr ullarkápunni.

Skreppitúr til Hamborgar næstu helgi til að heimsækja vinkonuna sem klippir á mér hárið (LOKSINS segir hárið á mér).

Upphitunarlokasýning í næstu viku svo brjálað að gera.

Hafði þrátt fyrir annir tíma til að dansa með FM Belfast á vikunni sem leið. Það var gott þriðjudagskvöld!

Lítur hins vegar út fyrir að ég muni missa af Hjaltalín þegar þau koma í gettóið mitt og spila á vindmyllubarnum (sem er auðvitað við hliðina á vindmyllunni sem er ca 3 götum fyrir neðan götuna mína) á föstudaginn, því það er uppselt. Ég geri ráð fyrir að það verði ekki þverfótað fyrir íslendingum í gettóinu þann daginn svo ég ætla að flýja til norður london svo það verði styttra að fara á flugvöllinni til að ná morgunfluginu til hamborgar.

Spurningin er hvað ætla ég að gera, annað en að læra, í páskafríinu (19.mars til 19.apríl)? Verð eiginlega að ferðast eitthvað, svona fyrst að ég þarf ekki að mæta neinstaðar. Nema náttúrulega einhver ætli að koma í heimsókn ;)

Brúðkaupsheimsókn til íslandsins í byrjun júní (sem þýðir 4 brúðkaup á 5 árum. Hver er pant  gifta sig á næsta ári svo ég geti viðhaldið þessari nýju eitt brúðkaup á ári hefð?)

Útskriftarsýning í lok júní og útskrift (includes cap and gown) eftir hádegi fimmtudaginn 15.júlí.

Jæja þá er ég búin að kovera nýliðna fortíð, nútíðina og nánustu framtíð svo ég ætti ekki að þurfa að blogga aftur fyrr eftir nokkra mánuði ;)

Follow

Get every new post delivered to your Inbox.